29.5.06

BÚIN !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Prófin búin - aðeins eitt ár eftir.

Akureyri á morgun - sumarið er víst mætt norður.

Litla systir alveg að meika það í Bournmouth - sakna hennar mest.

28.5.06

Geðveiki...

- síðasta prófið á morgun - GEÐLÆKNISFRÆÐI!!!

- ekki alveg mitt "thing"

- norðurlandið eftir TVO dag!!!!

27.5.06

Two down one to go...

Búin að kjósa - X?
Akureyri eftir þrjá daga - jibbý!!!

21.5.06

Dr.Akureyris....

Rúm vika í norðurlandið - alveg farin að hlakka til.
Þetta verður bara gaman...

17.5.06

Tómlegur kofi

Það er tómlegt í kofanum

Litla systir farin

Ekkert gaman

Er samt svo ánægð með hana

15.5.06

Kompás

Veit ekki alveg með þessar umfjallanir í Kompás...

8.5.06

Hversu yndislegt er þetta veður???

Ég er viss um að ástæðan fyrir því er að í dag eru 53 ár liðin frá því að hann faðir minn fæddist í þennan heim. Hann er sko alveg sá besti í heiminum. Hann er því miður ekki á landinu og verður því að eiga inni hjá mér afmælisknús...

Annars allt gott - var að passa þá bræður Gretti og Grím og voru þeir að venju sætastir.

3.5.06

Allt að gerast!!!

Jæja þá erum við stöllur komnar með húsnæði á Akureyri í sumar. Algjör snilld. Tveir svefnsófar og alles þannig að hér með er ykkur öllum boðið norður í sumar. Því þar verður sko góða veðrið - ha.

Annars skellti ég mér til Vestmannaeyja um helgina og þvílík og önnur eins stemmning. Eyjarnar mínar klikkuðu ekki frekar en fyrri daginn.

Svo er ég byrjuð á taugadeildinni og það er bara gaman. Gott að komast aftur í hvíta sloppinn góða...

2.5.06

Ammæli!!!

Í dag 2.maí á bestasta besta mamman mín í öllum heiminum afmæli. Í gær á sjálfan frídag verkamanna átti svo ferðafélagi minn með meiru afmæli.

Til lukku með daginn sætu konur!!!

Bloggsafn