25.9.06

Fréttatilkynning

Göngum með Ómari
þjóðarsátt fyrir komandi kynslóðir


Boðað er til fjöldagöngu með Ómari Ragnarssyni
frá Hlemmi að
Austurvelli klukkan 20.00 á þriðjudag. Ómar hefur
kynnt hugmyndir um
nýjar leiðir sem fela í sér að hægt verði að afla
raforku til að knýja
álverið í Reyðarfirði án þess að fórna þeim
náttúruperlum sem færu
undir fyrirhugað Hálslón. Ómar leggur til að
fyllingu Hálslóns verði
frestað og Kárahnjúkavirkjun verði geymd ógangsett
sem magnað
minnismerki um hugrekki þjóðar sem leitaði sátta
við kynslóðir
framtíðarinnar og eigin samvisku.
Ómar kynnti þessar hugmyndir sínar á
blaðamannafundi á dögunum. Við
tökum áskorun hans og sýnum stuðning okkar í verki
með því að safnast
saman og ganga niður Laugaveginn. Við hvetjum þig
til að gera slíkt
hið sama.


Því er boðað til:
Jökulsárgöngu niður Laugaveginn á þriðjudag kl
20.00
frá Hlemmi að Austurvelli

Horfumst í augu við siðferðislegar skyldur okkar
gagnvart landi og
náttúru –
Göngum með Ómari niður Laugarveg á þriðjudaginn

Bloggsafn