2.11.06

Sex and the City...

Ég er búin að vera veik núna í fjóra heila daga - ekki alveg það skemmtilegasta sem ég geri en svona er lífið.

Það eina sem ég hef haft heilsu í að bardúsa fyrir utan að tala í símann við vini og vandamenn er að horfa á nokkrar seríur af þáttunum Sex and the City eða Beðmál í borginni eins og það útleggst á íslenska tungu.

Þetta eru svo miklir snilldarþættir að það er bara engu líkt. Þær vinkonur hafa í gegnum tíðina veitt mér ómældan andlegan stuðning sem einstæð kona.

Einn þátturinn sem ég horfði á í morgun - já þeir voru nokkrir- fjallar um muninn á einstæðum konum og konum í sambandi. Skv þeim stöllum er mikill munur á þessum tveim hópum. Ég man þegar ég horfði fyrst á þennan þátt þá var ég þeim algjörlega ósammála.

En í dag er ég bara ekki viss. Oft held ég að við séum ekki að tala sama tungumálið. Ég tala nú ekki um þegar börn eru komin í spilið. Eins og góð vinkona mín og nýbökuð mamma orðaði það um daginn: Æ, Þóra mín þú skilur þetta þegar þú eignast sjálf börn!!! WHAT!!!

22.10.06

Það er endanlega komið á hreint.

Ég á bestu fjölskyldu sem hægt er að hugsa sér - það er bara þannig.

8.10.06

Góð helgi að baki...


Fínt tjútt á föstudaginn.
Þingvellir í haustlitum á laugardaginn.
Lék mér við Pétur Goða vin minn og fór á WTC.
Góð helgi...

4.10.06

Blákaldur sannleikur um karlmenn...

Er að lesa bókina Hann er ekki nógu skotinn í þér - blákaldur sannleikurinn um hvernig karlmenn hugsa.

Veit ekki hvort það er gott eða slæmt.

Þar kemur ýmislegt fram sem ég er bara alveg í sjokki yfir.

26.9.06

Lisa Ekdal


Ég elska og þá meina ég ELSKA Lisu Ekdal.

Ef mér líður eitthvað illa í hjartanu mínu þá bara hlusta ég á hana Lisu vinkou mína og allt verður svo miklu betra eitthvað.

Eins og svo margt annað gott þá kynnti hún Hulda mín mér fyrir henni Lisu.

Það má eiginlega líkja þessu við heilaga þrenningu - Hulda, Lisa og Þóra.

25.9.06

Göngum með Ómari

Göngum með Ómari
- þjóðarsátt fyrir komandi kynslóðir

Boðað er til fjöldagöngu með Ómari Ragnarssyni frá Hlemmi að Austurvelli klukkan 20.00 á þriðjudag. Ómar hefur kynnt hugmyndir um nýjar leiðir sem fela í sér að hægt verði að afla raforku til að knýja álverið í Reyðarfirði án þess að fórna þeim náttúruperlum sem færu undir fyrirhugað Hálslón. Ómar leggur til að fyllingu Hálslóns verði frestað og Kárahnjúkavirkjun verði geymd ógangsett sem magnað minnismerki um hugrekki þjóðar sem leitaði sátta við kynslóðir framtíðarinnar og eigin samvisku.

Ómar kynnti þessar hugmyndir sínar á blaðamannafundi á dögunum. Við tökum áskorun hans og sýnum stuðning okkar í verki með því að safnast saman og ganga niður Laugaveginn. Við hvetjum þig til að gera slíkt hið sama.

Því er boðað til:
Jökulsárgöngu niður Laugaveginn á þriðjudag kl20.00 frá Hlemmi að Austurvelli

Horfumst í augu við siðferðislegar skyldur okkar gagnvart landi og náttúru.

Göngum með Ómari niður Laugarveg á þriðjudaginn.

Fréttatilkynning

Göngum með Ómari
þjóðarsátt fyrir komandi kynslóðir


Boðað er til fjöldagöngu með Ómari Ragnarssyni
frá Hlemmi að
Austurvelli klukkan 20.00 á þriðjudag. Ómar hefur
kynnt hugmyndir um
nýjar leiðir sem fela í sér að hægt verði að afla
raforku til að knýja
álverið í Reyðarfirði án þess að fórna þeim
náttúruperlum sem færu
undir fyrirhugað Hálslón. Ómar leggur til að
fyllingu Hálslóns verði
frestað og Kárahnjúkavirkjun verði geymd ógangsett
sem magnað
minnismerki um hugrekki þjóðar sem leitaði sátta
við kynslóðir
framtíðarinnar og eigin samvisku.
Ómar kynnti þessar hugmyndir sínar á
blaðamannafundi á dögunum. Við
tökum áskorun hans og sýnum stuðning okkar í verki
með því að safnast
saman og ganga niður Laugaveginn. Við hvetjum þig
til að gera slíkt
hið sama.


Því er boðað til:
Jökulsárgöngu niður Laugaveginn á þriðjudag kl
20.00
frá Hlemmi að Austurvelli

Horfumst í augu við siðferðislegar skyldur okkar
gagnvart landi og
náttúru –
Göngum með Ómari niður Laugarveg á þriðjudaginn

22.9.06

The inner circle...

Aldrei hefði mér dottið í hug að á 28. aldursári væri enn fólk að bætast í innsta hringinn góða.

Endalaust kemur þetta líf mér skemmtilega á óvart.

13.9.06

Krít var algjör snilld í alla staði.



Snilldar staður og flottur ferðafélagi.

Við

~ drukkum mikið af bjór
~ borðuðum yndislegan mat m.a. kolkrabba
~ fórum í siglingu
~ snorkluðum og sáum þá fullt af furðufiskum
~ leigðum okkur blæjujeppa og keyrðum um eyjuna - mega gellur
~ drukkum kokteila
~ lásum mikið en hlógum enn meira


og bara nutum lífsins.

Endalaus snilld....

3.9.06

Crete...

Ég og Hulda mín með bjórinn í annarri og sólaráburðinn í hinni.

Lisa vinkona Ekdal í græjunum.

Kokteill sem getur ei klikkað.

Farin - Krít kallar.

17.8.06

Sam my friend!!!

Fékk alveg snilldar bréf frá Sam vini mínum í Úganda um daginn og ég bara verð að deila því með ykkur:

hi you people,

your are so much quiet why not say any thing are still there, any way i hope you are a fine . and doing well. i dindn't wish you even x-mas or even the new yaer but am very sorry for that. greatings to all the the people down here and have a nice time...

19.7.06

Bréfið hennar Láru...

Fékk þetta miðurskemmtilega bréf frá Lara vinkonu minni í Líbanon:

On behalf of a Lebanese Citizen:

Dear friends,

I am writing to you as a helpless human being praying in a country slowly being erased from the surface of life for my salvation, that of my fellow Lebanese brothers and that of my country.

A brief summary from the perspective of a citizen: half of Lebanon is isolated with more than 40 main bridges destroyed, my family in the south has no food to eat, no meat, no bread and the vegetables are very highly priced because of the danger to bring them in, missiles are fired every day and night on many villages in the south. Beirut is harshly being bombarded, a lot of bridges were pulverized even in the capital, the airport is devastatingly damaged as well as all the roads linking Lebanon to the neighbouring country Syria. Today all the sea ports were bombarded and we are imprisoned while many Lebanese are compelled to stay outside Lebanon and many non-Lebanese from all nationalities are compelled to remain in. No food, gas, fuel, or post can reach us. Villages all over the Bekaa and the north are also bombarded and this all has happened in only 3 days!!!

The situation is escalating around the clock! We are now under the threat of chemical intoxication since many fuel storage tanks all over the coastline are being targeted. There is much worst! Kafarshooba and Hetta, two villages in the south are being shelled with prohibited chemical weapons and toxic substances. Villagers who are seeking refuge in occasional shelters, completely isolated with no minimum fundamental supplies, are asked now to inhale through wet textiles, sniff onions and to grind charcoal then put it in wet tissues to protect themselves from intoxication!

Hundreds of civilians were cold-bloodedly targeted and killed on purpose in such a way never seen or imagined before! The most appalling and shocking massacre was when a bus carrying about 25 villagers from Marwaheen was hit by a rocket. They were fleeing their village following an Israeli threat and the UNIFL refused to shelter them! No one of them remained alive! The region of Dahieh (Beirut southern suburb) was completely devastated like Hiroshima… Its inhabitants, or those who are still alive, are fleeing to other regions where public and private schools establishments opened their door to give them refuge…

In light of the foregoing, I feel that words are useless or have lost their meaning….

I am not sure what I am asking for exactly...I don't know if you are aware that the UN meeting on Thursday did not lead to a decision to a cease-fire, which I perceive as contradictory with the very definition of the UN.

All I want is my rights as a human being. What I am asking for is that no matter what the problem is, it should be solved outside the scope of a war.

Is there anything our community of young people can do? Would the governments of the world listen to the voices of the next generation? I really don't know what I am asking for, but I know I am asking for help.

Thank you for reading this, it would already mean a lot to me.


LeMSIC, with the help of some IFMSA Officials (thank you Layal, Claire and Vlad), has prepared a petition, to be sent to the UN, UN Security Council, EU, and other NGOs, institutions and councils working in the field of Human Rights and Peace.

To access and sign the petition, please click on http://www.petitiononline.com/Jul06Leb/petition.html

Let's make a stand for humanity, let's make a stand against war, let's make a stand against crimes..
Please forward to all your members, friends, and families..

God Bless Lebanon
L.



Lara M.N. El-Zahabi, MD
President - LeMSIC
Lebanese Medical Students' International Committee
Vice-President - IFMSA
International Federation of Medical Students' Associations

11.7.06

Lífið er gott

Jæja nú er of langt síðan ég bloggaði síðast.
Margt hefur nú gerst síðan þá. Það sem stendur líklegast upp úr er tjúttið okkar Huldu. Já við skvísurnar skelltum okkur sem sagt á Stuðmannaball í Sjallanum. Það var svo mikil snilld að erfitt er að lýsa því. Hún Hulda mín var svo glöð í hjartanu sínu að ég hef bara ekki séð annað eins. Algjör snilld.

Í gær kom svo Óðinn Bragi vinur minn sæti í heimsókn - já og auðvitað foreldrar hans líka. Við tókum Akureyringinn á þetta , pizza á Greifanum og ís hjá henni Brynju.

Á morgun koma svo mamma og pabbi til Akureyrisss - vá hvað ég hlakka mikið til.

Lífið er gott...

3.7.06

Erfið helgi

Vá hvað ég er glöð að þessi helgi er að baki...

30.6.06

Boot Camp

Ég er að segja ykku það - það er allt til alls hér á Akureyrisss.

Reyndar er ekki Nóatún - sem er að mati sumra lífnauðsynlegt en hér er Boot Camp. Og viti menn mín bara skellti sér á æfingu í morgun. NB kl. 06.10!!! Þetta var alveg frábært. Þvílík útrás og skemmtilegheit en ég næstum því DÓ!!! Við erum að tala um blóðbragð í munninn og þann pakka. En nú er ég alveg manna hressust í vinnunni og þegar búin að afgreiða 2 sjúklinga.

Svo er bara að sjá hvort ég geti vaknað svona snemma á mánudaginn...

28.6.06

Fréttir að norðan...

Hello hello!!!
Allt gott að frétta frá Akureyrisss.Hér leikur veðrir við okkur og lífið er gott. Alveg brjálað að gera í vinnunni - en það er nú bara gaman af því.
Vil benda á síðu sambýlingsins þar sem hún er mun duglegri að skrifa en ég.

19.6.06

Frí handan við hornið...

Jæja - brjáluð og ég meina BRJÁLUÐ vinnuhelgi að baki. Frí næstu helgi og þá á sko að gera eitthvað skemmtilegt. Óska hér með eftir félagskap þar sem uppáhalds sambýlingurinn minn er á vakt um helgina.

14.6.06

Guðsonurinn..

Hversu sætur er maður???

9.6.06

Busy - busy - busy

Vá það er svo mikið að gera í þessari vinnu minni að ég á ekki til eitt einasta orð...

5.6.06

Skemmtilegheit...

Akureyri heldur áfram að koma skemmtilega á óvart.

Helgin var brill.
Fengum skemmtilega heimsókn að sunnan. Fórum í sund - grilluðum - máluðum bæinn heldur betur rauðan og kíktum á Sólveigu sveitakonu. Sem sagt endalaus skemmtilegheit á norðurlandinu.

Svo er það bara vinnan framundan - var að átta mig á því að ég er á vakt þar til föstudaginn 24.júní. En það er nú bara gaman...

Bloggsafn