28.4.06

Sumargleði...

Ég er sko komin í sumarskap. Geðið búið í bili og ég er glöð...

22.4.06

Læri - læri!!!

Læri, læri - geði, geði - gleði, gleði???
Varð annars vitni að svo fallegu í gær að ég brosi bara hringinn!!!

9.4.06

FSA

Jæja - Akureyri er víst alveg málið í sumar!!! Er sem sagt búin að fá stöðu á slysadeild FSA. Vona að sem flestir sjái sér fært um að kíkja í heimsókn...

6.4.06

SKemmtileg stjörnuspá eða ekki....

Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.

P.s. Ég á sambærilega stjörnuspá fyrir öll merkin ef þið hafið áhuga ;)

29.3.06

að elska og vera elskaður II

Ég elska spinning. Ég elska nýja púlsmælinn minn. Ég elska ekki að detta af hjólinu í spinning fyrir framan alla :)

28.3.06

að elska og vera elskaður...

Ég elska iPodinn minn. Ég elska/hata diet coke. Ég elska ekki dónalegt fólk...

17.3.06

Langþráð helgi...

Erfið vika að baki og langþráð helgarfrí í augsýn. Engin smáræðis plön um helgina - hin árlega sumarbústaðaferð er nefnilega fyrirhuguð. Er alveg búin á því...
Góða helgi!!!

15.3.06

Iss piss!!!

Vá hvað mikið af fólki hefur það miður gott í þessu svo kallaða velferðarþjóðfélagi okkar og það á tíma þessarar endalausu uppsveiflu - eða er hún ef til vill búin?

14.3.06

Fastir liðir eins og venjulega...

Æ það er svo gott á þessum tíma mikilla breytinga að finna fyrir því að sumt breytist aldrei. Sunnan á landinu og því var boðað til músluhittings - það klikkar aldrei!!!
Annar solid viðburður á morgun - afmæliskaffi hjá Ólafíu. Til lukku með daginn duglega stelpa!!!

27.2.06

10 /10

Helgin var bara skemmtileg - fær 10 af 10 mögulegum.
Held ég eigi skemmtilegustu bekkjarsystur sem til eru.
Er mætt á geðið...

25.2.06

Helgin...

Stór plön um helgin.
Mikið vinna, mikið gaman og vonandi einhver lestur í bland.
Stelputjútt dauðans í kvöld...

16.2.06

Hversu ósanngjarnt getur þetta líf verið...


Var að fá frekar leiðinlegar fréttir af vinum mínum frá Úganda...
This season has been very dry with prolonged drought from November 2005 and it’s expected to bite even hard till March 2006.This has brought about famine and hunger therefore leaving many families most especially CHH’s, orphans and PWA’s without food completely even leaving some premature deaths most especially in Lwamagwa sub county found in Kooki.
Orðskýringar:
CHH´s = Child headed household og PWA´s = People living with AIDS
Svo erum við að kvarta yfir umferðinni...

15.2.06

Vængbrotin með strengi...


Ég er alveg eins og vængbrotinn fugl þessa dagana - ferðafélaginn ákvað að ferðast vestur um haf og skilja mig eina eftir. Sakna hennar svo svo mikið...
Varðandi strengina þá er ég með harðsperru (hvernig sem það er nú skrifað)dauðans - er bún að vera þannig dugleg í ræktinni...

12.2.06

Rio de Janeiro - Brazil - Ágúst 2003

Sunnudagar...

Mér leiðist - Sunnudagar eru ekki mínir dagar...

Næturvaktir!!!

Enn og aftur er komið að þessum blessuðu næturvöktum mínum. Að því tilefni hefur Stöd 2 ákveðið að sýna bara leiðinlegar myndir um helgina - great!!! Jæja geri þá bara eitthvað annaði sniðugra í staðinn - eða ekki...
Stórt hyggelsisplan á morgun - jibbý...

9.2.06

17.júní 2005


Án efa einn sá skemmtilegasti dagur sem ég hef upplifað...

Bloggsafn