10.12.05

Nattevagten!!!

Er á næturvakt - sem er alveg fínt fyrir utan hvað hugurinn fer alveg endalaust á flug þegar maður er svona einn með sjálfum sér.

Var rétt í þessu að hugsa um hvað það er skrýtið að maður umgengst fullt af fólki sem maður gefur sér ekki tíma til að kynnast en svo þegar það gerist þá þá reynist það vera algjörar perlur. Hef alveg verið að uppgötva nokkarar svona perlur að undanförnu...

Vá þetta er alveg steikt færsla en klukkan er líka að nálgast tvö a.m.

Verð að sjálfsögðu að koma því á framfæri að hann Grímur er orðinn stóri bróðir - Grettir Þór fæddist þann sjötta júní síðast liðinn og að sjálfsögðu verður það að fylgja að ég er guðmóðir hans. Hef ekki alveg verið að standa mig í því hlutverki - en ég lofa betri tíð með blómum í haga í þeim málunum.

9.12.05

Og meira af Gimma gæ!!!

Grímur var sko að segja mér um daginn að hann væri með innbyggða tölvu í höfðinu og leiseraugu. Nú í rökréttu framhaldi af þessum samræðum spurði ég hann hvort hann gæti þá ekki galdrað líka. Ég hefði betur sleppt því þar sem í kjölfarið fékk ég alveg sko Þóra gett real augnaráð.

7.12.05

Grímur Grallari!!


Finn mig knúna til að deila með ykkur gullmolunum hans Gríms. Grímur var að kveðja pabba sinn um daginn sem var að fara á sjóinn. Þá kom þessi gullmoli: "Pabbi ekki fara mjög langt út á sjó svo ég sakni þín ekki svona ógeðslega mikið".

1.12.05

Blogg eða ekki blogg

Jæja nú er það að duga eða drepast - blogga eða ekki blogga.
Er í prófum núna og því þanning stemmning í Dverghömrunum. Það er svo merkilegt hvað maður hefur alltaf tíma til að gera allan ans... þegar maður ætti að vera límdur við skrifborðið...
Over and out

23.8.05

Þannig skemmtileg helgi að baki..

Föstudagur – heljarinnar partý hjá Hörpu og Guðjóni. Þannig gaman.
Laugardagur – brúðkaup Guðnýjar og Eika. Tóm snilld. Hversu falleg geta ein hjón verið???
Sunnudagur – Stefán Gunnar litli frændinn minn skírður
Mánudagur – Þannig huggulegt matarboð hjá Ástu frænku
Þriðjudagur - Föstudagur – Ég og Ásta amma á rúntinum um vestfirðina

Hvað getur maður beðið um meira????

10.8.05

Rwanda...

Er að lesa þannig áhugaverða bók sem heitir "We wish to inform you that tomorrow we will be killed with our families". Hún fjallar um fjöldamorðin sem áttu sér stað í Rúanda árið 1994. Þá var ákveðið að þeir sem voru af Hutu-ættbálknum skyldu drepa alla þá sem voru af Tutsi-ættbálknum. Þetta var tilkynnt í útvarpinu mánuði fyrir fjöldamorðin. Hutuar gerðust m.a.s svo grófir að drepa eigin fjölskyldu meðlimi þar á meðal eiginkonur sínar ef þeir væru af Tutsi-ættbálknum...
Að minnsta kosti 800.000 manns létust á aðeins 100 dögum - "most efficient mass killing since the atomic bombing in Hiroshima and Nagasaki" segir í bókinni.

7.8.05

Jæja - mætt á klakann eftir mjög svo lærdómsríkt sumar. Er bara búin að vera hér í rúmar 2 vikur - get samt ekki beðið eftir að komast aftur til Afríku. Finnst ég oft hafa verið eins og álfur út úr hól hér en aldrei sem nú...

Átti nú samt alveg yndislega helgi – sumóferð með litlu prinsunum mínum og svo áttum við Óðinn Bragi stórvinur minn stókostlega kvöldstund saman. Góð helgi að baki og strembin vinnuvika framundan.

24.5.05

1 down - 3 to go...

Nú styttist í ferðalagið mikla. Eitt próf búið þrjú eftir og svo er það bara Afríka. Get varla beðið. Erum búnar að stja upp síðu sem við ætlum að reyna að vera duglegar að skrifa inn á fréttir af okkur og verkefninu. Kíktu endilega hér!!!

1.5.05

Styrkur í höfn...

Jæja, nú er allt að gerast - Astra Zeneca það ágæta fyrirtæki hefur ákveðið að styrkja okkur stöllur vegna fyrirhugaðrar Afríku ferðar okkar. Engin smá gleði og þvílíkur léttir. Nú er bara að fara að undirbúa sig því það styttist óðum í brottför en hún er áætluð þann 2.júní. Við klárum prófin þann 31.maí svo það er ekki mikill tími sem gefst í undirbúning - en það hlýtur að reddast.
Þann 27.apríl s.l. fæddist þeim Berglindi og Sigga lítil prinsessa. Hún er alveg með þeim fallegri sem ég hef séð. Kíkti á þau í gær og varð alveg veik en var fljót að jafna mig þegar ég kom heim og sá flugmiðann minn - London to Nairobi og staflann af bókum sem ég á eftir að lesa. Þetta bíður betri tíma - vonandi.
Í dag 1.maí á hún Ásbjörg, bekkjarsystir mín til margra ára og ferðafélagi með meiru afmæli í dag. Til lukku með daginn sæta!!!

26.4.05

Gleði - gleði - gleði...

Gleði líf mitt er - loksins er allt að gerast. Meira seinna...

7.4.05

Dr. Sunna sæta....

Kíkið endilega á þetta. Þar getið þið séð Sunnu sætu í action. Annars allt gott að frétta af Fóunni. Bara mikið að gera. Later...

28.3.05


Kilimanjaro í öllu sínu veldi

Gróft plan og gleðilega páska...

Jæja, þá er komið gróft plan fyrir Afríkuferðina miklu. Förum út í byrjun júní og komum til baka í lok júlí. Verðum 5 vikur í verkefninu sem er alveg endalaust spennandi. Það byggist mest á að aðstoða krakka sem misst hafa foreldra sína úr alnæmi. Okkar starf felst þó aðalega í því að þjálfa upp innfædda sjálfboðaliða sem síðan fara út í sveitirnar og fræða fólk um forvarnir og aðferðir sem auðveldað getað fólki að lifa með alnæmi. Einnig munum við starfa á klínik þar sem koma sjúklingar með alnæmi á lokastigi. Þetta verður án efa alveg meiriháttar upplifun en líka mjög erfitt. Nú eftir þessar 5 vikur þá ætlum við að klífa Kilimanjaro - þ.e. a.m.k. að reyna það. Það tekur 7 daga með öllu. Planið er svo að enda á 5 daga safaríi í Kenja. Þetta hljómar allt of vel. Get ekki beðið mikið lengur. En þangað til er það lestur svo later...

20.3.05

Skatturinn og annað skemmtilegt...

Sit og dunda mér við að fylla út skattframtalið. Er alveg endalaust glöð yfir því að eiga sama sem ekki neitt - líklegast eini tími ársins sem mér líður þannig.
Tíminn líður alltaf jafnhratt og aftur er komin ný vika. Hvar endar þetta eiginlega? Síðasta vika var alveg frekar busy - verknámið og tvær vaktir í Sóltúninu var ef til vill aðeins of mikið af því góða. Þetta verknám er alveg snilldin eina. Mikið gaman, mikið fjör. Stórafmæli á föstudaginn hjá henni Berglindi bekkjasystir minni - sem var algjör snilld. Gleðin stóð langt fram undir morgun og ég hitti alveg einstaklega mikið af skemmtilegu fólki. Helgin fór því að mestu í að hvíla sig. Ekki alveg nógu gott - svona lærdómslega séð. Verð bara að lofa betri tíð með blóm í haga hvað það varðar. Later...

15.3.05

Hún á afmæli í dag...

Ólafía Lárusdóttir æskuvinkona mín með meiru á afmæli í dag. Til lukku með daginn sæta!!!

13.3.05

Dansi dansi...

Úganda hefur svarað. Þeir eru ólmir í að fá okkur stöllur. Snilldin ein sem þetta sumar verður.
Mín bauð í mat í gær þeim eðalgellum Ásdísi, Erlu og Hörpu. Það gat því ekki klikkað. Enduðum í brjáluðum dansi á NASA. Góð helgi að baki...

7.3.05


Afmælis-prinsinn!!!
Stórvinur minn Óðinn Bragi er 1.árs í dag. Til lukku með daginn litli prinsinn minn!!!

6.3.05


Alda að "læra"

Lestrarhelgin mikla!!

Við stöllur skelltum okkur austur fyrir fjall - nánartiltekið á Reynishóla - þar sem ættaróðalið hennar Huldu er staðsett. Þar áttum við snilldar helgi. Vorum duglegar að lesa, horfa á videó og drekka rauðvín. Algjör snilld.
Er svo að byrja á kúrsus á morgun. Á að mæta á almennaskurðdeild 14 G kl. 8.00. Það er því eins gott að fara að sofa í hausinn á sér. LATER...

Bloggsafn